Heiðar Birnir
Male
Hafnarfjordur

Heiðar Birnir Kristjánsson

<< May 2012 >>
Sun Mon Tue Wed Thu Fri Sat
 01 02 03 04 05
06 07 08 09 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31



Hér fyrir neðan er ýmislegt, sumt áhugaverðara en annað



Netverjar

Víkingur Kristjánsson
Ingþór Sigurðarson
Snæþór Halldórsson
Elvar Guðmundsson
Nanna Rögnvaldardóttir


Útivist og þessháttar

Ferðafélag Íslands
Ferðafélagið Útivist
Útivera
Ganga.is


Ýmislegt á netinu

Vinnan
Mogginn
Baggalútur
Bæjarins Besta



If you want to be updated on this weblog Enter your email here:



rss feed



1.5.07
Í tilefni dagsins

Fram, þjáðir menn í þúsund löndum,
sem þekkið skortsins glímutök!
Nú bárur frelsis brotna á ströndum,
boða kúgun ragnarök.
Fúnar stoðir burtu vér brjótum!
Bræður!  Fylkjum liði í dag -
Vér bárum fjötra en brátt nú hljótum
að byggja réttlátt þjóðfélag.
  þó að framtíð sé falin,
  grípum geirinn í hönd,
  því Internationalinn
  mun tengja strönd við strönd.


Posted at 01:23 pm by Heiðar Birnir
Make a comment  

20.11.06
Þar kom að því. Ég er fluttur.

Hér hef ég verið frá 10. október 2003. Reyndar hef ég aldrei kunnað neitt sérlega vel við mig hér, bara tutlast og horft á málninguna þorna.

Nýja heimilisfangið er:

heidarbirnir.blog.is

sjáumst.

 


Posted at 01:18 pm by Heiðar Birnir
Make a comment  

16.11.06
Undir þriggjastafatölunni

Tæknileg mistök ollu því að ég ók á ofsahraða og lögreglan tók mig og kærði.  En þetta sakaði engan og enginn tapaði á þessu.  Ég tók þessu - og það er gott að ég er með breitt bak.

Eftir æfingu dagsins skellit ég mér pottinn.  Það var pínulítið fáránlegt að sitja úti í heitum potti í sjö gráðu frosti og roki.  En potturinn var heitur og góður og eftir hlaupin var gott að láta líða úr sér.

Af hverju segir rektorinn á Bifröst af sér ef enginn fótur er fyrir því sem sagt hefur verið um hann og hans uppátæki. Ef hann er maður með bein í nefinu ætti hann að berjast fyrir rétti sínum en ekki að segja af sér og hlaupa eins og barinn hundur með skottið á milli lappa... ja nema... getur það verið að eitthvað sé til í þessu.  Ég veit það ekki - en það lá við að nokkrir félagar mínir sem stundað hafa nám á Bifröst dönsuðu fugladansinn af gleði og ánægju.  Hvaða tæknileg mistök gerði þessi rektor eiginlega... fyrst svona fór.

Ætli það hafi ekki verið tækinleg mistök að Árni Johnsen hafi endað í öðru sæti í prófkjöirnu... átti hann ekki fyrsta sætið?  Hvað klikkaði?


Posted at 08:06 pm by Heiðar Birnir
Comments (2)  

15.11.06
Ævintýrin okkar

Brrrr. Veturinn mættur í öllu sínu veldi.   Það var skítakuldi í morgun og þannig verður það næstu dag.  Ég held að þessi vetur verði svona í harðari kanntinum.  Ég spái því að það verði meira að segja snjór hér á höfuðborgarsvæðinu...  Ég er nú reyndar ekki spámannlega vaxinn...

Stefnum á leikhús um helgina.  Amadeus, í Borgarleikhúsinu á laugardagskvöldinu.  Það verður eitthvað til að hlakka til.


Posted at 09:22 pm by Heiðar Birnir
Make a comment  

12.11.06
Þessi spörður er grænn!

Þetta er búið að vera fín helgi.  Afslöppun, heimsóknir og fengum heimsókn.  Í gærmorgun, laugardag, fjölmenntum við til Júlíu en hún smalaði okkur í bröns.  Það var fjör og gaman.  Seinnipartinn fórum við í dálítið búðarölt og enduðum í Bónus, þar sem vikuinnkaupin voru gerð.  Alltaf gott þegar þau eru búin.

Í dag var rólegheitardagur.  Guðbjörg og Júlía kíktu í heimsókn eftir að við höfðum beilað á Helgafellinu.  Svo eltum við Júlíu heim til hennar og settumst uppá hjá henni í smá stund.  Aðstoðuðum hana við að hengja upp gardínur og svo var náttúrulega bara spjallað.

Þegar við vorum að gera matarinnakupin í gær vorum við að vesenast með hvað við ættum að hafa í matinn í kvöld.  Enduðum að að kaupa partýskinku.  30% afsláttur við kassa og var þetta því ódýrara en kjúlli.  Í ofn í klukkutíma og var þá ekki bara komin þessi fína jólalykt í kotið.  Drukkum malt og appelslín með þessum herlegheitum.... hálfgerður jólastemmari.

Það styttist annars óðum í þau, jólin.  Ég hlakka til.


Posted at 07:48 pm by Heiðar Birnir
Make a comment  

10.11.06
Súkkulaðitoppur

Helgi, eina ferðina enn.  Það er bara gott.  Við verðum í rólegheitum geri ég ráð fyrir.  Engin læti eða of mikið útstáelsi. 

Ég fór á foreldrafund í gærkvöldi hjá FH.  Alveg ágætt að hitta þjálfarana og fá að vita svona smá upplýsingar um hvað stendur til.  Sem er ekkert smá.  En það er einn böggull á þessu.  Það þarf foreldra til að vinna að þessu öllu saman.  Hjálpa krökkunum við að selja skeinipappír, ganga í hús og safna dósum og plasti og glerjum.   Vinna við mótin (sem verða þónokkur) ásamt ýmsu öðru.  Af hverju er þetta svona flókið? Ég veit ekki hve mikinn þátt við tökum í þessu.  Kemur í ljós.


Posted at 09:19 pm by Heiðar Birnir
Make a comment  

4.11.06
Undarlegir hlutir áttu sér stað

Óttalega getur maður nú veri vitlaus.  Ég labbaði yfir í Suðurbæjarlaugina (um 1. km.) til að geta hlaupið þar á bretti fjóra og hálfan kílómetra.  Og svo var náttúrulega gengið til baka.  Jahérna.  En ég fór reynar líka í pottinn.


Posted at 03:45 pm by Heiðar Birnir
Comments (5)  

3.11.06
Möguleiki á náðun

Það er alveg svakalega gott að byrja helgina með því að skella sér í heitan pott.  Slaka verulega á og láta litla stressið líða úr sér.  Koma svo heim rétt um klukkan sjö - og helgin gengur hægt og rólega í garð.  Þetta verður ljúft.  Árshátíð á morgun.  Mikið fjör.  Ég hlakka til.


Posted at 08:59 pm by Heiðar Birnir
Make a comment  

1.11.06
Tók bara við klinki

Núna voru skúrir.  Spurning hvort það verði ekki bara skin næstu daga.  Það vona ég.

Það átti sér stað skemmtileg uppákoma í sundi um daginn.  Ég var í heitapottinum, flatmagaði eins og mér er lagið, þegar byrjaði að braka í hátalarakerfinu og upphófst raust manns sem tilkynnti sundlaugagestum að í pottinum með sveppnum (svona vatnssveppur) væri ung og fögur stúlka sem væri að fara að gifta sig.  Bað röddin alla karlmenn að skoða nú gripinn og reyna að koma í veg fyrir þetta uppátæki hjá henni.  Svo var sungið.  Stuttu seinna kom Lágfiðlan (Ólafur Diddafiðluson) út með mandólín og söng annað lag fyrir dömuna.  Bara ljúft að láta sig mara í heitum potti og hlusta á söng.


Posted at 08:36 pm by Heiðar Birnir
Make a comment  

30.10.06
Hvert á svo að fara?

Jæja, nú geta Íslendingar ekki tekið gríni lengur.  Það er búiðað kæra Extrablaðið Danska fyrir að kalla Ísland pappírseyju og halda því fram að Íslendingar haldi að þeir geti yfirtekið heiminn.   Nei, sagnfræðingurinn Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson hefur líkt þessu við ofsóknir á hendur gyðinga og langt fram kæru... Geta menn ekki tekið þessu sem hverju öðru gríni?  Ætli íslenskir fjölmiðlar hafi ekki farið verri orðum um einhverjar þjóðir í álíka gríni??? 

Þetta er sama grínið og Björn Bjarnason er með þegar hann segi að hann hafi unnið varnarsigur.  Þingmaður og ráðherra til margra ára sem fær ekki stuðning innan síns flokks til að færa sig upp um eitt sæti getur ekki kallað slíka niðurstöðu varnarsigur, það væri nær að kalla þetta höfnun.


Posted at 09:15 pm by Heiðar Birnir
Make a comment  

Next Page